Liggi liggi læ læ liggi liggi ló...

SRITTLESSSS

11.08.2007 08:19:10 / alda

Færeyjar smæreyjar

Jæja maður er kominn heim frá fuc... Færeyjum. Þetta var fín ferð en ég er ekki á leiðinni þangað á næstunni. Ólafsvakan var skemmtileg og gaman að sjá hvað Færeyjingar eru duglegir að mæta í þjóðbúningunum sínum og þramma niður í bæ. Hestamennskan er svolítið spes verð ég að segja.8| En eins og ég og Linda ákáðum áður en við fórum frá Færeyjum, what happends in Föreyjar stays in Föreyjar.! :haha: Ég komst að skítlegu eðli sumra Færeyinga og er það geymt en ekki gleymt. :^) og mun sá hinn sami fá kaldar mótökur hér á landi þegar viðkomandi skríður á klakann. :klikk:

Þegar ég kom heim var farið á hestbak og prufaður nýji hnakkurinn og var stefnan tekin í Narfastaði. þegar þangað kom var aðeisn talað við Júllu og svo voru höfð hestaskipti. Nema hvað helvísti hundurin hann Snati meig á hnakkinn minn :evil: Helvítis hundurinn en mín heppni svo sem. Júlla greyið var að reyna að hlæja ekki og kallaði á hinn hundinn og var hann notaður sem moppa 8|

Ég lagði við hryssuna mína, Sól, um daginn og var hún bara fúl. hún sparkaði og skvetti og reyndi að gera allt til að berja frá sér pískinn. Hún var ekki sátt. :$

En jæja látum hér staðað numið í bíli.

Ég vil óska Ósk og Axel innilega til hamingju með króann , sem er alls ekki lítill!

Bless í Hólastresssi 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 09:58:26 / alda

spent

Nú er ég stödd í Keflavík og get varla sofið lengur fyrir spenningi. Færeyjar í kvöld!!! ég fæ alveg fiðrildi í magann þegar ég hugsa um þetta. íííííí8)

Ég kom suður á miðvkikudaginn og fyrsta skiptið sem ég keyri ein í bænum og alla leiðina suður.:!: Ég kom við á Akranesi og hitti Signý mína. Hún er svo sniðug. En svo var ferðinni haldið áfram í Hörgsholt í Hafnafirði og gekk vel að rata þangað, tók bara eina vitlausa beiju en það reddaðist.;) Ég, Auðbjörg og Heiðdís skelltum okkur til Jóns söðlasmiðs og þar var eytt peningum. 8| Ég keypti mér hnakk, allt á hnakkinn, yfirbreiðslu fyrir hnakkinn, beysli, nasamúl og taum! nú verður maður glæsilegur í réttunum í haust 8) Svo var brunað í Keflavík til Lindu. Kolbrún Harpa var að halda upp á afmælið sitt og voru dýrindis kökur á boðstólnum.  Svo var farið og kíkt á Sigurlaugu og nýjasta fjölskyldumeðliminn.  Vá hvað hún er lítil. Í gær var ég að æfa mig að keyra og rata í Kefló og nú rata ég til Sigurlaugar og Hörpu og í Samkaup. :haha: En í gær var bara tekið því rólega og horft á video og komu Halli og Krissa í heimsókn. Við horfðum á hrillingsmynd sem heitir The massanges shit og var hætt að horfa á tímabili! :S en núna er best að fara að fá sér morgunmat og gera allt klárt fyrir Föreyjena:haha:

sjáumst :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 20:26:52 / alda

Færeyjar.. 4 dagar - pínu sorg í hjart

nú er orðið ískyggliega stutt í Færeyjar! það eru 4 dagar og ég bara er að tapa mér af spenningi!!
Ég er bara búin að vera að vinna eins og mófó og hef voða lítið gert. Nema kannski farið á hestbak og er að prufakeyra nýjan hnakk sem heitir Barri og Jói á hann. Þetta er suddalega góður hnakkur og ég mæli með honum, ég ætla að kaupa mér svona hnakk.
það er bara 2 dagar í vinnu og svo er það Keflavík here I come.  Get ekki beðið.
Mig dreymdi svo spes draum um daginn og ég er ennþá að melta hann. Þetta snérist um hringa og bjart stórt hús.
Elín á Sigló eignaðist strák í morgun, hann er algjört krútt. Sigurlaug systir pabba var tekin með keisaraskurði á föstudaginn og hún fékk stelpu. Fullt af fjölgun í hópnum. það er ein vinkonan enn sem er ófrísk og það kemur með haustinu.
Morgundagurinn varður erfiður dagur heima í sveitinni. Magga dýralæknir ætlar að koma og svæfa 4 hross og þessi hross hafa verið okkur mjög kær. Þetta eru þau Sokki, Ljóska, Stjarna og Dögun.  Ég hef átt Stjörnu síðan ég var 3 ára og hún er besti vinur minn má segja. Alltaf róleg og alltaf hægt að klappa henni hvar sem er. Ljóska hennar mömmu er eldri en ég og hefur alltaf verið ein af uppáhalds merunum mínum heima. Hún hefur gefið okkur góð hross og er sjálf rosalegur karakter. Sokki er tveimur árum yngri en ég og hefur hann alltaf spilað stóran hluta i mínu lífi. Hann er fyrsti og eini graðhesturinn sem ég hef setið á og hann hefur alltaf varið einn af okkar hornsteinum í hrossarækt. Gefur mikið skjótt og er algjör snúlli. Ég þekki því miður ekki Dögun mikið en nema hún hefur reynst vel í ræktunni og við eigum ekki mikið undan henni því það selst undantekningar laust.  Ég kveð með tárum í augum og kvíði fyrir morgundeginum


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 17:14:45 / alda

Er á lífi

Ég ætlaði bara að láta vita að ég væri á lífi.

Ég er bara verið að vinna eins og svín og sofa og éta þess á milli. Ég fór reyndar í bæinn á föstudagskvölið með henni Laugu minni, það var alveg rosalega gaman. marg snúið en skemmtilegt! :) en ég fór á ættarmót á laugardaginn, hjá eiginlega nýjum ættingjum og það var ótrúlega gaman. ég var reyndar pínu þunn þarna en það slapp alveg Ég er voða glöð yfir því að við fórum.
í dag var bara voða rólegt líf. Tók rúnt á Skagastörnd að ná í eina vinkonu mína sem varð óvart strandaglópur. .. humm....  því næst var farið að vinna..

það eru havð... 11 daga i Færeyjar...

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 22:26:32 / alda

Moldvörpulíf

ég er laus við gifsið og vá hvað það hafði sína kosti og galla. Kostir; ég get klórað mér þegar mér klæjar, léttara að hreifa fótinn. Gallar; hef sjaldan verið eins loðin á fætinum, agalega illa liktandi ( búinn að vera svitna þarna í 6 vikur án hreynsunar). Núna er ég í fríi frá vinnu þangað til 2 júlí og ég get ekki beðið að fara að vinna. En ég er að reyna að nýta tímann vel og tína plöntur fyrir plöntusafnið mitt. Ég datt í einum skurðinum við að ná í eina sóleyplöntuna og mér datt þá í hug blár pony galli ! það gengur svona upp og ofan, hver er munirinn á einkímblöðungum og tvíkímblöðungum og gróplöntum?? þetta er aðal spurning dagsins.

Ég kíkti á ball á laugardaginn með Geira og ég slapp óbrotin frá því.  En hitti þar helling af fólki sem ég hef ekki séð lengi. skemmti mér rosalega vel í þessa 2 tíma sem ég var þar.

jæja best að fara að google aðeins


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 21:57:24 / alda

17. júní

Jæja góðann og blessaðann daginn og til hamingju með daginn.

Ég hef nú ekki brallað mikið þessa daganna, vinna, sofa, éta eins og maðurinn sagði.  Ég er byrjuð á plöntusafninu mínu og er það ágætt. Linda, Kolbrún og Davíð komu við í dag og men was I glad to see her! Ég kíkti á Akureyri með pabba og mömmu á föstudaginn og þvílík umferð og flottir bílar wooo!  Ég lostna við gifsið á föstudaginn og get ekki beðið.
ég horfið á handboltaleikinn Ísland - Serbar vá hvað hann var spennandi hhoooo!  snilld! Íslenska kvennalandsliðið er að gera góða hluti, sigruðum Frakka og svo er það leikur á mánudaginn, man ekki við hverja en við erum að rúlla þessu upp.

jæja látum þetta duga í bili

bæjó spæjó


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 21:31:04 / alda

Ryekja...vík....

jæja pæjan er stödd í Reykjavík, sem er svolitið skrítið í þetta sinn. Ekki það að vera í gifsi sé að hafa áhrif heldur Flest allir sem ég hitti alltaf þegar ég er í Reykjavík eru fyrir norðan. Þetta er nú meira ruglið, en það verður að hafa það. Helsta ástæðan fyrir suðurför minni er sú að ég fór að heimsækja Írisi Lilju á Barnaspítala hringsins. Hún er bara ótrúlega brött miðað við aðstæður, útlitið er mjög gott og vonum það besta og höfum hana í bænum okkar. Annars er bara róleg heit, sit hjá Kristjáni bróður og með bjór og er að horfa á The Diparted sem er bara ágæt skal ég segja ykkur. í gær fórum við Kristín á Pirates of the Carrabien, the worlds end held ég að hún heiti en þetta er mynd númer þrjú. Hún er ágæt en ekkert rosalega góð sumt mátti alveg missa sín.
jæja látum þetta duga í bili
Bless í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 20:35:50 / alda

yfirlit

jæja það er nú að verða komið svolítið langt síðan að ég bloggaði þannig nú skal láta slag standa og rita hérna nokkur orð.

Ég er byrjuð að vinna á fullu

Starfsfólkið er af ýmsum toga en allt saman gott fólk og skemmtilegt

Ég get svona að mestu gegnið núna á þess að hafa hækjur

Gifsið er vel skreitt og flott

Það er kominn hellingur af folöldum og ýmsir litir bara æði.

Ég á rúmar 2 vikur eftir í gifsi

Sauðburðurinn er alveg að vera búin, um 8 kindur eftir

Ég er að fara til Reykjavíkur á morgun með Kristínu Helgu

bless í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 09:59:14 / alda

I'm alive

ég er byrjuð að vinna aftur! jibbí ! ég hef verið að bóka inn þær bókanir sem eru komnar voða gaman. Annars allt í róleg heitunum. ég er að fara í 2 útskriptaveislur um helgina og hlakka bara til. fyrri er hjá Árna Gísla og Sigríði og hin er hjá Guðnýju vinkonu. En ég æltlaði bara að láta vita að ég sé á lífi og það eru tæpar 3 1\2  vika þangað til að ég lostna við gifsið! get ekki beðið.

og já ég var að fá geðveikt hestadót frá Þýskalandi í gær. lonseringar múl og taum og geðveik ístöð! men ó men. þau verða sko notuð, þegar ég kemst á hestbak og ef ég kemst á hestbak.... 


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 12:36:13 / alda

sæluvikan hvað

ég fór á sæluvikuball sem er ekki frásögu færandi nema ég flaug á hausinn og öklabrotnaði!! þar með hrundi allt mitt plan!!!! men er ég svekt!! en ég á bara 5 vikur eftir í gifsi...
sauðburðurinn gegnur hræðilega. mikill lambadauði og ömulegt. við erum búin að senda sýni á Keldur og vonum að fá eitthvað út úr þessu. jæja best að fara fá sér verkjalyf

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 16:14:24 / alda

Germany - Þýskaland

ég fór með vinnunni til Þýskalands og þvílík stemming! men ó men ég held að ég hafi sjaldan hleigið jafn mikið! ég vinn með snillingum!!!

Miðvikud. var tekinn með tropmi , vinna-pakka niður- Sauðárkrókur- Reykjavík- Keflavíkurflugvöllur!

Fimmtudagur; flug kl 7:30 og flogið beint til Frankfürt. Þar var hoppað upp í rútu og brunað á Rigio Emiliia leikskóla. Maður var helvíti tussulegur þarna enda ný kominn úr flugvélinni. En svo var fairð upp á hótel (helvístis lestarkerfi) og aðeins gert sig sætari og svo tekin lestin niður í bæ og farið út að borða. ég panntaði bógsteik og fékk hana með bógbeininu! þokkalega! ótrúlega skemmtilegt! ég og Ása vorum að brillera í eplavíninu og drukkum alveg slatta af því. eftir að hafa sundið  Stína var lítil stúlka í sveit var farið heim á hótel. kellan skellti sér beint í svefninn

Föstudagur; ræs kl 6:15!!! lestin var tekin til Koningberg og skoðaður útileikskóli og svo var tekin lestin aftur til Frankfürt og alveg í hinn endann á bænum og skoðað Waldorf leikskóli! Brillinat leiksskólar! svo var frjálst val um kvöldið . þá var kíkt í H&M og þess háttar verslanir. svo var reglulega sest niður og fengið sér öl svo var farið á hótelið og aðeins pústað og farið á barinn! fín stemming

Laugardagur; vöknuðum um 7 og fórum til Weisbaten og fórum í kljáf. agalega fallegt þarna! því næst var farið að skoða sig um í bænum og fengið sér bjór og ís því hitinn þarna maður!!! dí um og yfir 20 stig! svo var farið út að borða á hótelinu og þar voru frábær skemmtiatriði! je hvað maður var búin að hlægja mikið!! svo var fengið sér nokkrir öllarar og svo skellt sér í háttinn.

Sunnudaguri; farið heim!

þetta var frábær ferð í alla staði og ég væri alveg til í að fara með þessu fólki út aftur bara í næstu viku!!

En takk fyrir öll sms -in og hringingarnar og kommentin með afmælið mitt! það varð þúsund kall (thusund tak) :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 13:53:05 / alda

lítið og ómerkilegt

ég hef nú ekki gert mikið þannig.  vinna, ræktin og svo vera bóndi heima. svo er það náttúrulega Þýskaland í næstu viku! cant wayt!! jæja lítið og lélegt í dag ...

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.04.2007 13:06:52 / alda

Reykjavík!

jæja ég skellti mér suður með pabba á föstudaginn og byrjuðum að fara í Vélaver og kaupa eitt stykki votheysgreip, mjög sniðugt apparat. svo hennti pabbi mér út hjá Heklu og hann skundaði á fund. Ég skoðaði þarna nokkra bíla og sá þarna 2 sem gátu komið til greyna. Auðbjörg kom svo og náði í mig og við fórum í Ístölt og svo náðum við í Heiðdísi. Kíkti aðeins til Jóa og svo fór ég til Guðnýjar og Ingu Möggu. Inga skellti sér á 80's ball í þvílíku outfit! Ég rúnntaði með Elinu og bumbubúanum og svo kíktum við Inga í bjór með Andreas og Ricardo. Laugardagurinn var tekinn bara snemma. Við pabbi tókum bílasölurúnt og svo var farið niður í Heklu og skoðað meira. Kristján bróðir er algjör snillingur í þessu. Á endanum fundum við THE bílinn. ég sem sagt keypti mér WV Golf 2004 og mjög lítið keyrður! svo var stefnan tekin á Halakot og skoðað fullt af hestum og þar á meðal Heklu mína. Hún verður æði en djöfullsins rok var þarana. Eftir að hafa tekið upp á video og verða orðin veðurbarinn þá var skellt sér í Þorlákshöfn og skoðuð tryppi. Því næst var stefnan tekin í bæinn og ég og pabbi fórum út að borða á Ask og það var bara fínn matur. Fórum til Hödda og Linda náði í mig þangað. ég er svo vitlaus ég tók óvart símann hans Hödda með mér, hann er alveg eins og minn, og er búin að rugla duglega í þeim síma! shit! en því næst var farið til Keflavíkur og djammað að hætti okkar frænkna. Andreas og Rabbi komu með. Maginn er eitthvað fuct up eftir aðgerðina í Janúar og þarf að fara láta kíkja á þetta. skipta um varahluti. jæja þá er það ferming í dag! it is going to be fun!!!

Bless í bili  


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 16:31:02 / alda

stemming

ég fór á stjörnutölt á laugardaginn með foreldrum mínum og það var rosalega gaman.:P Ösp frá Enni lennti í fyrsta sæti og hún er bara 5 vetra.8| Þórdís Erla Gunnarsdóttir var knapinn en Krissa mamma hennar á hryssuna. Ösp er undan Sendingu frá Enni og Goða frá Auðsholtsjáleigu. Í öðru sæti var Halldór nokkur sem stundar nám við Hólaskóla, þriðja sæti varð Hans Kerúlf, Mette Mansett í fjórða og Baldvin Ari í fimmta.
við erum rosalega ánægð með árangurinn Aspar og þetta er bara byrjunin.8)

http://www.eidfaxi.is/frettir/index.php?lang=1&frett_id=14403

svo er viknan búin að líða bara svona eins og venjulega, nema ég fór á leikrit í gær sem heitir Ef ég væri gullfiskur, og er sýnt af leikfélaginu í Hofsósi. :Dþetta er rosalega skemmtilegt leikrit og ég var við það að pissa á mig af hlátir ! :lol::haha:ég mæli með þessu, bara 2000kr inn!;)

svo er það suður í menninguna á föstudaginn með gamla. ding ding, ný drossía.. maður spyr sig8)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 22:42:50 / alda

helvítis veikindi

ég hélt að það væri til takmörkun fyrir hversu mikið maður getur orðið. ég er með gubbupest! en ég verð að segja ég fór á magnaðann fund um dagin, hjá sauðfjárræktarfélagi viðvíkursveitar. Þar fengum við viðurkenningu fyrir besta kynbótahrút 2006 sem heitir Spakur. annars ef veikindin verða af baki þá er stefnan tekin á Störnutölt á laugardagskv.  hlakka agalega til. það er ein hryssa frá okkur þarna. hlakka til!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12